Ferill 393. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1431 — 393. mál.
Frumvarp til laga
um þungunarrof.
(Eftir 2. umræðu, 3. maí.)
I. KAFLI
Markmið, gildissvið og orðskýringar.
1. gr.
Markmið og gildissvið.
Ákvæði laga þessara gilda um rétt kvenna til þungunarrofs, sem og um framkvæmd þungunarrofs og heilbrigðisþjónustu vegna þess, en ekki um tilvik þar sem um nauðsynlega læknismeðferð er að ræða enda þótt fósturlát hljótist af.
Ákvæði laga þessara gilda einnig um fósturfækkun.
2. gr.
Orðskýringar.
1. Fósturfækkun: Þegar læknisfræðilegum aðferðum er beitt við að fækka fóstrum hjá konu sem er þunguð af fleiri en einu fóstri.
2. Heilbrigðisþjónusta vegna þungunarrofs: Hvers konar heilbrigðisþjónusta sem veitt er þungaðri konu í tengslum við þungunarrof, þar á meðal fræðsla, ráðgjöf og framkvæmd þungunarrofs með lyfjagjöf eða annarri læknisaðgerð.
3. Þungunarrof: Lyfjagjöf eða önnur læknisaðgerð sem framkvæmd er að beiðni konu í því skyni að rjúfa þungun.
II. KAFLI
Þungunarrof og heilbrigðisþjónusta vegna þungunarrofs.
3. gr.
Réttindi kvenna við þungunarrof.
4. gr.
Heimild til þungunarrofs.
Skorist heilbrigðisstarfsmaður undan framkvæmd þungunarrofs á grundvelli 14. gr. laga um heilbrigðisstarfsmenn, nr. 34/2012, skal tryggt að kona njóti réttinda skv. 1. mgr.
Einungis er heimilt að framkvæma þungunarrof eftir lok 22. viku þungunar ef lífi þungaðrar konu er stefnt í hættu við áframhaldandi þungun eða ef fóstur telst ekki lífvænlegt til frambúðar. Staðfesting tveggja lækna skal liggja fyrir þess efnis að fóstur teljist ekki lífvænlegt til frambúðar.
5. gr.
Heimild til þungunarrofs hjá stúlku sem er ólögráða fyrir æsku sakir.
6. gr.
Heilbrigðisþjónusta vegna þungunarrofs.
7. gr.
Framkvæmd þungunarrofs.
8. gr.
Fræðsla og ráðgjöf.
Öll fræðsla og ráðgjöf í tengslum við þungunarrof skal veitt á óhlutdrægan hátt og byggjast á gagnreyndri þekkingu með virðingu fyrir mannréttindum og með mannlega reisn að leiðarljósi.
III. KAFLI
Almenn ákvæði.
9. gr.
Gjaldtaka.
10. gr.
Skrá um þungunarrof.
11. gr.
Viðurlög.
12. gr.
Gildistaka.
13. gr.
Breyting á öðrum lögum.
a. Orðin „fóstureyðingu eða“ í 2. tölul. 2. gr., 6. gr., 25. gr., 1. mgr. 28. gr. og 1., 2. og 3. tölul. 1. mgr. 31. gr. laganna falla brott.
b. II. kafli laganna, Um fóstureyðingar, fellur brott.
c. Orðin „11. og“ í 1. mgr. 24. gr. laganna falla brott.
d. Orðin „sbr. þó 15. gr.“ í 1. málsl. 26. gr. laganna falla brott.
e. Orðin „fóstureyðinga og“ í 1. mgr. 29. gr. laganna falla brott.
f. Orðin „fósturlát eða“ í 30. gr. laganna falla brott.
g. Orðin „9., 10. eða“ í 1. tölul. 1. mgr. 31. gr. laganna falla brott.
h. Orðin „11., 12., 13.“ í 2. tölul. 1. mgr. 31. gr. laganna falla brott.
i. Orðin „15. eða“ í 3. tölul. 1. mgr. 31. gr. laganna falla brott.
j. Heiti laganna verður: Lög um ráðgjöf og fræðslu varðandi kynlíf og barneignir.